|
Lag vikunnar
The Verve-Bittersweet symphony
Marmaris
Fyrir 1652 dögum
B�?�?�?ºin �?�?�? pr�?�?�?³fum!!
Fyrir 1738 dögum
Tyrkland
Fyrir 1652 dögum
Port�?�?�?ºgal
Fyrir 1736 dögum
Vetrarfrí
Fyrir 1576 dögum
|
11.09.2008 21:38:37 / ragga
Ný síða
http://www.mardisogragga.bloggar.is
Ég er stödd í Barcelona. Lenti í gær, en ég og Mardís munum eyða næstu þremur mánuðunum hér í spænskuskóla.
blés.
»
13.04.2008 20:50:40 / ragga
Í ljósi þess að ég hef voða lítið að gera á þessu fallega sunnudagskvöldi og nenni ekki að byrja að læra þá ákvað ég að láta aðeins heyra í mér á þessari semi-dauðu síðu.
Var að skoða bikiní og kjóla á Victorias Secret fyrir útskriftarferðina, en við erum á leiðinni til Alanya á Tyrklandi í lok maí og fokk hvað ég get ekki beðið! Langar samt í alltof mikið.. þetta er hættuleg síða...
Fann eina frekar fyndna mynd af Adriönu Limu...

hvað er í gangi með svipinn?
»
28.02.2008 16:10:42 / ragga
fín síða.. mikið að gerast!
setti inn myndir samt, það er framför!
www.picturetrail.com/raggat www.picturetrail.com/nemo2008
próf á morgun, kórferð um helgina!
sjáumst
»
05.01.2008 15:37:35 / ragga
Setti inn myndir.. - www.picturetrail.com/24nov - Jólin voru æði og áramótin líka. Í kvöld er afmæli hjá Jonna á Gauknum, ár og öld síðan ég steig þangað inn, lofar góðu. Framundan er svo...... Janúar Febrúar 7.feb er svo Nemódagurinn sjálfur, get ekki beðið! Reyndar orðin smá stressuð með kjól 
Kem svo kannski með svona yfirlit yfir árið 2007 á næstunni kv. lélegasti bloggarinn
»
02.10.2007 23:35:15 / ragga
djók eða? þetta er eitt það hallærislegasta sem ég veit, stelpur -don't do it! Mamma og Dúnna systir eru á leiðinni til Orlando á föstudaginn og úfffff hvað mig langar með!! Ég hugsa nánast um það á hverjum degi hvað það væri gaman ef ég færi með. Ég fæ þó að vera með þeim í anda og versla á netinu í staðinn. Á föstudaginn er Ví-mr dagurinn og ég hlakka smá til. Ég hlakka samt mest til ræðukeppninnar, það er alltaf einhver sérstök stemmning, og kannski fæ ég þá að hitta Sillu og Tönju vinkonur mínar sem ég hef ekki hitt ooof lengi, hvar eruð þið? Svo styttist óðum í vetrarfrí, en ég býst við að ég fari ekkert og veri bara heima að læra.....svona er að vera dúleg! 
einu sinni var ég svona nett!
»
18.09.2007 19:26:00 / ragga
ég er búin að setja inn restina af myndunum frá marmaris www.picturetrail.com/marmaris0072 og svo líka myndir úr fyrirpartýinu fyrir Busaballið www.picturetrail.com/busa2007
»
08.09.2007 18:11:59 / ragga
90's ball á Nasa í kvöld eeeelska það 
»
01.09.2007 13:20:13 / ragga
Hvað er í gangi með fótboltamenn nútímans?? Detta niður dauðir hver á fætur öðrum í leikjum eða á æfingum. Ætli þeir séu að taka eitthvað inn eða hvort það fari saman að vera góður í fótbolta og vera með hjartagalla? Mér finnst þetta allavega mjög sorglegt og langar að deila með ykkur einu furðulegasta video sem ég hef séð. http://www.youtube.com/watch?v=NiVjzSTIPOc Ljósanótt og svo Snobbpartý í kvöld. Nett nett nett. Fyrsti hluti mynda frá Marmaris er að finna hér: http://www.picturetrail.com/marmaris007 Sigyn setti líka inn myndir: http://sigyn.myphotoalbum.com
»
20.08.2007 20:01:40 / ragga
Komin heim! myndir væntanlegar framundan er þá... skóli frumsýning Astrópíu ljósanótt

»
02.08.2007 13:43:54 / ragga
Þetta
blogg er tileinkað þessum sæta strák en hann á afmæli
í dag, 7 ára!

dýrk'ann!
Annars er ég, ásamt fríðu föruneyti
á leiðinni til Tyrklands,
Marmaris á morgun eða eftir sirka 23
klst verðum við staddar á Leifstöð að koma okkur í
gírinn.
.
Get ekki beðið eftir að komast í sólina, mér finnst
ég eiga það skilið eftir Monsoon-ið í Indlandi,
klárlega.
.
2 vikur 
.
bless
»
22.07.2007 20:03:40 / ragga
...............
Komin heim!
elska Ísland 
»
17.07.2007 20:22:17 / ragga
Jæja þá er kominn tími til að láta heyra aðeins í mér. En
það hefur ýmislegt drifið á daga mína síðan
síðast!
Það hefur ekki
rignt í þónokkurn tíma sem er æði en þegar það rignir þá lítur það
nokkurn veginn svona út:
Þetta er farartæki mitt um götur Bombay:
Fór í afmæli
hjá frægum Bollywood leikara, mjög steikt, voru svona 10
ljósmyndarar og 3 videocamerur, líklegast birtist mynd af mér og
Bryndísi (e. Bendice) í Mumbai Times, það á að vera voða nett. En
fólkið hér hugsar varla um annað en frægð og
frama.
Þetta er
Marriott hótelið sem við förum svo oft og fáum okkur hádegismat

Síðustu helgi
fór ég til Pune í Osho sem eru hugleiðslubúðir, já ég er ekki
að djóka.Ótrúlega flott, Bítlarnir voru víst mikið þar.Við
þurftum að vera í einlitum sloppum allan daginn, allir
eins..og fórum í ýmiss konar hugleiðslu og lærðum smá
magadans og annað, þetta var rosalega skemmtileg lífsreynsla
verð ég að segja. En ég gat bara verið í eina nótt. Vorum
einmitt í svona sloppum og svona er andrúmsloftið þarna,
allir brosandi.
Við
stelpurnar erum búnar að vera að spá í að fara til Delhi og svo
Agra og skoða Taj Mahal það er eitthvað sem maður hreinlega verður
að gera fyrst maður er hérna og líka þar sem ég hef aðeins séð
brjálað mikið af fólki og ruslahauga hingað til. Vorum einmitt að
skoða verð á flugmiðum og það var 900 kr fram og til baka, það er
hlægilegt verð! EN svo kom í ljós að það var verðið sem
Indverjarnir þurfa að borga, en túristar þurfa að borga meira,
talandi um mismun?
Beljurnar chilla á götunum eins og ekkert sé.. svo sér
maður fólk, beljur, geitur, hunda, ketti og rottur vera að
narta í sama ruslahauginn. Það eru hundar hér
gjörsamlega útum ALLT ég held að ég sjái að meðaltali svona 50
hunda á dag.. mér finnst það æði, nema þegar ég sé litla horaða..
þeir eru þó flestir alveg nettir bara, en það er bannað að drepa þá
og þeir lifa bara allir á götunni.
Það er eitt sem
mér finnst mjög einkennilegt hérna það er gamla fólkið ég
veit ekki hvort það sé einhver tískubylgja eða einhvers konar
trú en ég hef séð alveg furðulega mikið af gömlu fólki með
appelsínugult hár, þá meina ég ekki svona gulappelsínu
eitthvað. Nei, appelsínugult, mjög ljótt.
Það er hlægilega ódýrt
að snyrta sig hér:
Andlitsbað 600 isl
Nudd ca 1000 isl
Handsnyrting og Fótsnyrting 300 isl
Fótavax 300 isl
Brazilian vax 700 kr isl
Ég er
búin að gera eitthvað af vinnu hérna, þetta er allt öðruvísi en
heima verð ég að segja. Núna á sunnudag og mánudag vorum við Helga
að leika í tónlistarmyndbandi, eitt það fyndnasta og fáránlegasta
sem ég hef gert á ævinni, það sem okkur finnst kannski hallærislegt
gæti þeim fundist nettast í heimi. Þar var ég einmitt látin leika
Miss World í allri múnderingu sem fylgir því og einhverjir krakkar
og konur voru á settinu og þau komu öll til mín þar sem ég sat og
báðu um eiginhandaráritun og vildi öll taka í hendina á mér, mér
hefur sjaldan liðið jafn skringilega á ævinni, þau semsagt héldu að
ég væri Miss World í alvörunni. Ég náttúrlega gaf þeim bara
eiginhandaráritun þar sem þau hefðu aldrei skilið mig ef ég hefði
reynt að útskýra fyrir þeim að svo væri
ekki. Skrifaði bara nafnið mitt og
brosti.
Ég er búin að taka
nóg af myndum.. þarf bara að fara að vinna í því að setja þær
á netið.
Annars hef ég ákveðið að fara fyrr
heim, þannig að við sjáumst bara bráðlega

»
04.07.2007 17:14:44 / ragga
Jæja... Þá er ég komin með smá heimþrá og komin
með fyrstu bitin mín en þau eru eftir litlar ósýnilegar
pöddur sem lifa á holdi og heita bed bugs..
oj!...og mig klæjar ekkert smá. Það býr einnig alveg frekar
stór eðla inn í forstofunni okkar og svo búa rottur niðri hjá
Siggu, afar notarlegt. Eftir þessar tvær vikur sem
ég hef verið hér hef ég líka komist að því að Indverjar eru
allt öðruvísi en ég hélt og finnst greinilega ekkert mál að
ljúga.
Fórum í bíó í
gær, ég, Eva og Helga á Die hard 4, mér
fannst hún góð. Bruce náttúrulega aðeins of svalur. Misstum
af þjóðsöngnum en Indverjar syngja alltaf þjóðsönginn áður en
myndin byrjar, hefði viljað upplifa það! Ég varð háð poppinu
en það var karamellupopp ég veit það hljómar
ekki vel en það var svoo gott, við keyptum okkur tvo skammta
Við erum svo búnar að ákveða að fara á Harry Potter þegar
hún kemur í bíó, sem er bráðum.. þrái
poppið!
Annars gerði
ég fyrsta verkefnið mitt hér í fyrradag, fyrir
HSBC alþjóðlega bankann. Mjög undarleg myndartaka
en ég fór einmitt í vax, hand og fótsnyrtingu og nudd og fór svo
ofan í heitt bað með fullt af bubblum og átti bara að liggja þar
með lokuð augun, svo þar á eftir átti ég að liggja upp í sófa að
lesa bók. Frekar nice. Ég var líka að vinna með Bretum og þá gat
maður loksins talað venjulega ensku en ekki ensku með indverskum
hreim. Indverjunum fannst ég vera líka Jessicu
Simpson? Einmitt. Fór í casting í gær fyrir svona business
eitthvað og ég átti að vera að leika unga móður um þrítugt.. maður
er einmitt sendur í ótrúlegustu casting hérna og þar hittum við
einmitt nettan gaur frá Kaliforníu sem var með mynd af sér og
Adriönu Limu í tölvunni sinni, mér finnst það
nett.
Annars
er ekki mikið að frétta nema Eva er farin heim aftur
og Ásta kemur eftir 3 daga og ég kem að öllum
líkindum fyrr heim en ég ætlaði!
Ég sá
fíl úti á götu áðan, lítinn og sætan en viti menn ég var ekki
með myndavélina mína, það var frekar
svekkjandi.
Annars sá ég risastórt
auglýsingaskilti frá HSBC hér um daginn og mér brá ekkert smá en á
því stóð: Which currency offers the highest rate of
interest in the developed world? : The Icelandic krona og
svo eitthvað meira en að spá í að sjá þetta á Indlandi.. aldrei
hefði mér dottið það í hug, fannst þetta bara svona sniðugt
innskot. Takk.
Það er engin rigning eins og er en það
gæti byrjað að rigna hvenær sem er! Þótt það sé rosalegt ævintýri
að vera hérna þá þrái ég mest af öllu að fara í sumarbústað eða
útilegu, sund og grilla eða fara í körfubolta í góða veðrinu heima.
Mig langar semsagt að gera allt sem ekki hægt er að gera hér
En þá er það bara að fara á Marritott að borða og svo í nudd

Endilega sleppið því að tala um góða
veðrið heima, takk. (ég frétti einmitt að það sé spáð
rigningu alla næstu viku aaha.)
Kv. Ragnheiður
Indverji.
»
30.06.2007 17:14:14 / ragga
Indverjar eru klikkaðir.
Ég var að
koma heim, rennandi vot.. eins og ég hafi stokkið ofan i sundlaug
án djóks. Það er svoo mikil rigning og flóð um
allar götur, það er sko eins og það sé ein
risastór sundlaug alls staðar fyrir utan, það er varla hægt að
labba í þessu. Ég var semsagt vakin kl 10 og mér var sagt að ég
yrði að vera tilbúin eftir korter(einmitt) ég átti að fara að hitta
eitthvað fólk fyrir myndatöku, við lögðum af stað í hellirigningu
sko eins og hellt væri úr fötu, bókstaflega, rigning á Íslandi er
sko ekki rigning miðað við þetta. Ok, ég búin að gera mig fína og
svona, byrjum á því að þurfa að skipta um dekk sem tók ótrúlega
langan tíma þó þeir væru 3 að, svo finnur bílstjórinn ekki staðinn
og einhver kelling alltaf að hringja í mig og segja mér að koma og
ég að reyna að útskýra fyrir henni að við vissum ekkert hvar þetta
væri. Svo hækkaði og hækkaði vatnsyfirborðið og ég varð hræddari og
hræddari, var byrjuð að ímynda mér ýmislegt. Þurfti svo að fara
útúr bílnum og labba í flóðinu á hælunum en við fundum ekki staðinn
og loks hringdi “yfirmaðurinn” minn og sagði mér að fara bara heim.
Við festumst oft á leiðinni og ég var orðin frekar hrædd, því það
hefur oft gerst hér að fólk festist bara einhvers staðar í 4 daga.
En ég komst þó heim heil á húfi rennandi blaut og mjög pirruð

Annars kom Eva í
gær, við fórum út að borða og kíktum á einhvern stað þar sem
sextugur maður var að reyna við Bryndísi og vildi dansa við
okkur.. hvað er í gangi?? Fórum bara snemma
heim. Í kvöld á svo að vera kveðjupartý fyrir Tönyu, stelpuna
frá Slóveníu en ég veit nú ekki hvað verður um það útaf
rigningunni 
Það er þó
ekki allt ónýtt því það er hægt að fara í ræktina og nudd og svo er
5 stjörnu hótel, Marriott í
sirka 15 mín fjarlægð frá okkur, fórum þangað í gær í hádegismat og
mér leið eins og ég væri í draumalandi
Það var hægt láta gera sitt eigið pasta,
pítsu, indverskan, brauð, súpur, fisk og bara hvað sem er, og
eftirrréttarhlaðborðið.. guð minn góður! Það voru svona 15 gerðir
af súkkulaðikökum og vöfflur og ís og nammi og bara allt, við átum
allar yfir okkur og ég varð ekki svöng það sem eftir var af þessum
degi, og svo er verðið auðvitað hlægilegt miðað við það sem maður
er að fá.
Nú
þegar hef ég farið í indverskt brúðkaup, það er
öðruvísi en heima ..mun litríkari föt og miklu fleiri demantar
hehe..
Það
gerist allt frekar hægt hér á meðan veðrið er svona og varla hægt
að fara út, en þá finnur maður sér bara eitthvað að
gera.
Vona að þið
hafið það gott heima, ég veit að það er ógeðslega gott veður og mér
er alveg sama, kv. bitra 
ég,sigga og helga í
brúðkaupinu
»
23.06.2007 09:11:51 / ragga
Jæja þá
get ég loksins látið heyra í mér hérna frá Indlandi. En til
þess að komast á netið þarf ég að sitja frammi í
stigaganginum þar sem er ekkert loftræstikerfi því það er
eini staðurinn með netsambandi. Fyrsta daginn hér var ég mjög
þreytt eftir þetta langa ferðalag hingað en það leið þó
óvenju hratt.
Mér finnst ég
alls ekki hafa fengið neitt rosalegt menningarsjokk, kannski
því ég var búin að undirbúa mig svo fyrir það? Eina sem var
skrýtið fyrst var hvernig allir hérna keyra það er
náttúrulega alveg fáránlegt, það eru engar reglur og allir
bara eitthvað í klessu og að flauta á hvorn annan(en það er
samt til þess að láta vita af sér held ég) svo eru allir
jafnmiklar frekjur og enginn víkur fyrir neinum, mér finnst
þetta eiginlega bara frekar fyndið. Ryksjaw er mjög
skemmtilegt farartæki en manni líður allan tímann eins og
maður sé alveg að fara að lenda í slysi og svo eru þeir
alltaf mjög nálægt því að klessa á fólk sem labbar yfir
götuna, fór fyrst yfir götu núna áðan og það var lífsreynsla
En annars ferðast maður allt í Ryksjaw eða í bíl,
maður labbar ekkert.. nema þá í mesta lagi yfir eina götu sem
er ekki eins auðvelt og maður gæti haldið!
Húsið hér
er fínt og nokkuð hreinlegt, fínt loftræstikerfi og fín rúm en
frekar viðbjóðslegt baðherbergi en ég læt mig hafa það. Svo eru
auðvitað mjög fínar stelpur
hérna.
Í gær fór ég í
fyrsta casting-ið mitt hér fyrir Canon myndavélar, áttum að mæta í
“sexy en samt ekki too loud” outfitti.. hehe Svo þegar við
komum þá
áttum við
að dansa! Ekkert annað.. bara
dansa, við Bamboleo með Gipsy Kings, ein fyrir framan myndavél og
fullt af fólki.. mjög fyndið en samt alveg gaman. Mér hefur sjaldan
liðið jafn kjánalega á ævinni
Maturinn hérna er mjög góður og allt
öðruvísi en ég hélt, og kostar auðvitað ekki neitt, það er einn
staður hérna mjög nálægt okkur sem heitir Myst, maturinn þar er æði
og líka súkkulaðikakan Svo er líkamsrækt hérna rétt
hjá okkur líka Nautilius keðjan sem er líka í Kópavogi.. kom mér
mjööög á óvart. Það er æði þar, ég keypti mér mánaðarkort sem
kostar ekki rass og ef ég hef ekkert að gera á daginn þar sem það
er ekki mikið um casting núna og þar af leiðandi ekki vinna þá ætla
ég bara að vera í ræktinni og nuddi, andlitsbaði og einhverju dekri
bara. Það eru líka æðislegar sturtur og gufa
þar.
Það eru hundar útum allt
hérna á götunum og ógeðslegar risarottur og litlar sætar eðlur
líka, svo auðvitað nóg af moskito og alls konar furðulegum
pöddum.
Fólkið hérna talar flest
ensku með mjög indverskum hreim, elska það. En það tekur sinn
tíma að skilja þá og mun venjast með tímanum. Og
fólkið hér skilur mann heldur varla ef maður gerir það
ekki líka, þannig að ekki láta ykkur bregða ef ég kem heim
með indverskan hreim 
Í dag er ekkert mikið að
gerast, en í kvöld er partý sem við ætlum öll að kíkja
í.
Ég set svo inn myndir við fyrsta
tækifæri!
»
Síður: 1 2 3 ... 12
|
|